Leita í fréttum mbl.is

Brendan kominn, standard farinn

Brendan kallinn er kominn í hýbýli mín og strax farinn að setja mark sitt á pleisið. Ég er allt í einu farinn að þrífa öllum stundum en á móti kemur að þessi dúlla er svo dugleg að elda fyrir mig. Steikt bjúgu voru í opnunarmáltíðinni og mun íbúðin anga af bjúgunum fram að jólum. Brendan ákvað síðan að klippa sig inn á klósetti, það er mjög eðlilegt? Þegar ég kom heim í kvöld voru svo átta drengir sotrandi veigar og spilandi póker í stofunni hjá mér. Þeir reyktu allir.
En þetta fylgir þessu víst, það er allavega engin ládeyða hér á Reynimelnum. P.s. strákurinn hans Brendans kom í gær og Brendan kynnti mig sem nýju mömmu hans. Ég stóð þarna með gúmmíhanskanna og játti nýja titlinum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Gleðigjafinn

Sigurður Eggertsson
Sigurður Eggertsson
Ég er ungur og bjartsýnn og það blessast allt hjá þessháttar gæja, nema hvað.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 1112

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband