30.10.2007 | 10:47
Enginn veit hvað átt hefur.
T.
Vakinn upp úr dimmum draumi
dreginn gegnum súrt og sætt
Tálsýn brast með táraflaumi
trúin á að geta bætt
Næ hvorki að tjá né túlka
tilfinningar mínar hér
Þó veit ég að þessi stúlka
þunga byrði með mér ber
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:14 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Siggi minn...
ég sendi þér hér með internet knús, getur stutt þig við það þangað til þú kemur heim og færð nokkur alvöru !
kv. KnúsRobbi
Robbi (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 00:53
Elsku litli bróðir, sendi þér hér tvö sjálfshjálparráð sem ég vona að komi að gagni:
1. Erfiðleikarnir eru aldrei stærri en geta okkar til að leysa úr þeim
2. Þú ert aldrei einn. Mátturinn sem hreyfir stjörnur og sólkerfi hreyfir líka við þér.
Gangi þér vel og vertu sterkur. Við sjáumst á gamla landinu.
Beggi (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 16:50
Láttu smátt en hyggðu hátt
Heilsaðu kátt ef áttu bágt
Leik ei grátt við minni mátt
Mæltu fátt og hlæðu hátt
Magnús Björn (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 11:55
Bíddu rótt sé boðið ótt
Ef blekkist fljótt þá gleðjist skjótt
Gráttu hljótt því þor og þrótt
Í þunga nótt hefur margur sótt
Magnús Björn (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 11:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.