Leita í fréttum mbl.is

Lífsgreddu vantar.....

Undarlegir tímar. Ég er nú lífsgraður að eðlisfari og ekki vanur að vola yfir örlögum mínum, enda hafa þau verið aldeilis ágæt hingað til. En dagarnir í Danmörku eru fullir vonleysi. Ég vakna um hádegið, vil þó alltaf sofa lengur, borða og tékka á hvort einhver hafi kommentað á síðuna. Það er borin von. Eftir það tek ég mér góða fjóra tíma í að kvíða fyrir æfingu. Eftir æfingu ét ég og fer að sofa, afspyrnu óánægður með dagsverk mín. Skrokkurinn er alltaf frekar tussulegur og ekki batnar hann með sífelldri fjarveru frá sjúkraþjálfara. En það er hausinn sem ég hef áhyggjur af, með hann tussulegan fer allt fjandans til. Þetta eru úrvalsárin sem ég lifi nú og leiðinlegt að eyða þeim eins og ég geri þessa dagana. Ég er fullur af lífsorku sem fer til spillis á degi hverjum. Mig langar svo mikið til að gefa mig allan í eitthvað en hef bara ekki hugmynd hvað það gæti verið. Nógan hef ég tímann en engar hef ég hugmyndir, því það er ekki bara eitthvað til að drepa tímann sem ég leita eftir. Mig vantar fullnægju í lífið, eitthvað til að hella sér út í en ekkert bankar upp á hjá mér. Hingað til hefur einhvern veginn allt komið upp í hendurnar á mér og ég hef ekki þurft að hafa fyrir neinu. Nú skilar sér ekkert og ég hef ekki hugmynd hvernig ég hef upp á því.

Þið megið þó ekki halda að Gleðigjafinn sé eitthvað þunglyndur, ég er alltaf glaður drengur en þó nokkuð tómur þessa dagana. Endilega skrifið nú eitthvað fallegt til mín svo ég hengi mig ekki.

þar til næst, fokk off

siggilitligleðigjafi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Siggi minn, það er leiðinlegt að lesa um þessa líðan þína, þú sem ert bjartsýnasta og jákvæðasta manneskja sem ég þekki. Það er alveg greinilegt að þú þarft að finna þér eitthvað að gera. Er ekki dýragarður þarna nálægt þar sem þú getur fengið vinnu? Hvernig væri að nýta þessa líffræði gráðu þína? Heimurinn er að missa af miklu ef þú ert heima mestallan daginn. Gerðu eitthvað sem gefur þér vilja til að fara á fætur snemma á morgnana. Ef þú vilt ekki finna þér vinnu eða eitthvað að gera, fáðu þér þá gæludýr

Hringi í þig í kvöld lilli.

Bergdís (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 08:52

2 identicon

Siggi litli xxxxatryllir

Afskaplega er aumt að heyra í þér hljóðið, hér kemur topp 10 listi yfir að því hvernig þú getur látið tímann líða hratt:

  1. Finna elliheimili í nærheden, fara og lesa fyrir gamlingjana, spila brids og gefa gömlum konum fótanudd
  2. Nýta sérkunnáttu þína með sláttuorfið. Er ekki blettur þarna einhvers staðar sem saknar þess að vera sleginn?
  3. Kaupa tölvuleik og spila hann rauðeygur fram á nótt, gætir verið orðinn frægur og ríkur í EVE eftir nokkrar vikur
  4. Semja fleiri siggalög, hringja svo í Bjarka Sig og bjóða honum að pródúcera þig
  5. Smíða topp tíulista-bók og gefa út í jólabókaflóðinu
  6. Gerast grænmetisæta og Jógi
  7. Læra dönskuna upp á 10, fara á dönskunámskeið með Abdul og Goran og bjóða þeim svo heim í smörrebröd
  8. Gerast alkóhólisti eða sprautufíkill
  9. Halda alvöru dagbók, litla innbundna sem þú geymir undir koddanum 
  10. Fara að þjálfa

Hvað sem lífsgreddu líður, hlýtur það að vera huggun harmi gegn að íslandsmeistararnir virðast sakna þín.  Spurning um að taka Ásthildi Helga á þetta og fljúga heim vikulega í leiki.

Ekki tapa gleðinni!

Björn (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 10:10

3 identicon

Alls ekki éta sýru nema þú sért sáttur með sjálfan þig. Það hafa nokkrir brennt sig á þessu.

Magnús Björn (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 15:15

4 identicon

Já, og ég er byrjaður að blogga á fullu, þú getur dundað þér við að skoða það: skafrenningur.blogspot.com - lang besta bloggið í bænum.

Magnús Björn (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 15:17

5 identicon

ég veit hvað þú getur gert siggi fundið nokkra íslendina þarna úti og stofnað utandeildar fótbolta lið FC Iceland eða eitthvað,
og svo getið þið keypt  ykkur hjól og farið að hjóla út um allt og svo getur þú og Tinna hjólað til kaupmanna hafnar og farið í tívólið og svo getið þig gert grín af dönum sagt eitthvað við þá sem þeir skilja ekki neitt og svo gætur farið í ræktin og safnað massa eins svo þegar að þú gast ekki haldið á síma almennilega og svo geturu keypt þér playstadion 3 og spilað góða leiki og svo geturu keypt spil svon ástar spil fyrir þig og Tinnu og þá kemur kannski lítill Siggi í heiminn hehe. og já eitt farðu að safna skeggi ekki raka þig í mánuð og settu svo mynd af þér inná bloggið eða myspace-ið af þér með skeggið jæja siggi bless bless og ekki hengja þig því það er bara heimskulegt skiluru. 

Hjörtur (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 17:02

6 identicon

Þú gætir nú kanski fokkast til að svara í símann þinn og fokkast svo til að koma í heimsókn. Ég er bara í sama fokkinu og þú. Hættu samt þessu fokking væli.

Kv Hannes í fokking Frederica

Hannes (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 22:08

7 identicon

Þá er bara að tölta af stað og leita að uppsprettunni. Ekki drepa á þessari fínu tómleikatilfinningu með einhverri afþreyingu. Ásdís frænka

G.G. biður að heilsa

Ásdís Thoroddsen (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Gleðigjafinn

Sigurður Eggertsson
Sigurður Eggertsson
Ég er ungur og bjartsýnn og það blessast allt hjá þessháttar gæja, nema hvað.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 1218

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband