Færsluflokkur: Menning og listir
16.11.2007 | 16:51
Nýja brumið farið...
þar til næst, fokk off
siggilitligleðigjafi
13.11.2007 | 16:15
Fagmenn í Fóðurleit; Reykjavík Pizza Company
Reykjavík Pizza Company
Borðað: 16"Íslendingur.
Gæði fæðis:Upplifunin af pizzunni var að hún hafi verið gerð í flýti. Lúkkar vel en vantartötsið. Ekki laust við hráleika í botni bökunnar. Pizzur eru eins og kynlíf,slæmt kynlíf er þó kynlíf. Þessi pizza var eins og slappt kynlíf, gott til aðbyrja með en lognast svo út af.
Verð: Rétt rúmlega2000 karl. Eðlilegt, maður spyr sig.
Stemning:Skemmtileg miðbæjarstemning þar sem gott útsýni er af efri hæðinni yfir ráfandiróna og jakkafataklædda plebba. Fyrir þá sem ekki þekkja muninn á róna ogplebba að þá eru rónar ekki allar eins klæddir. Kósý staður, vellíðan,réttlæti.
Þjónusta: Ekkertspes. Staðurinn er heillandi að utan sem að innan og því bjuggumst viðóneitanlega við betri þjónustu. Hér sannast hið fornkveðna að bókina skal ekkidæma af kápunni einni.
Dollan: Skínandigóð. Hátt til lofts svo fnykur stígur hratt upp. Nægt fótarými, niðurfall ágólfi (öryggisatriði). Kúkalyktareyðir á veggjum og pappírsþurrkur í staðhandblásara enda nær handblásari aldrei að þurrka lúkurnar.
Annað: Það stakk íaugun að sjá 3 pizzur kennda við bakara (rólegi-, reiði- og eldbakarinn), 5pizzur kennda við bændur (kalkúna-, grænmetis-, kartöflu-, kjúklinga- ogsvínabóndinn) en enga kennda við kennara, hvað þá fagmenn. Þetta er atriði semað vissulega svíður og má túlka sem einelti, þar sem starfsstéttir eru skildarútundan vegna yfirgangs annarra.
Kennaraeinkunn: Ekkiupp á marga fiska. 18 fiskar af 37.
Fagmenn þakka fóðrið.
Menning og listir | Breytt 11.1.2008 kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2007 | 14:43
Eistun komin niður....
Loksins orðinn alvöru karlmaður. Enda kominn tími til, 25 ára gamall. Já tuttuguogfimm! Marga rekur kannski í rogastand við að heyra hve árin eru mörg og trúa hvorki eigin eyrum né augum. Unglegt útlit má rekja til áralangrar notkunar á Face-protector (protect your face from drying effects of the wind, sun and cold) og skeggvaxtar á við fjögurra vetra stúlkubarn. En nú er það liðinn tími, nú er ég orðinn karlmaður. Eistun komin niður, hárvöxtur þekur grófgerðan líkamann, röddin minnir ekki lengur á saklausan skóladreng heldur skítugan bifvélavirkja, áhugi á fagurfræði og tilfinningum víkur fyrir áhuga á formúlunni og fótbolta og nú rétt í þessu var ég að tryggja mér áskrift að soraklámsíðu.
En hvers vegna þessi mikla breyting og hví nú? Svarið er einfalt. Ég fékk byssu í hönd og fór að skjóta! Fór með Þorbirni vini mínum til fjalla að skjóta rjúpur. Klæddur í veiðigallann (ekki flegna þrönga bolinn heldur kraftgallann) með hólk við hönd fann ég testósterónið streyma um líkamann og fylla hvert holrúm af árasárgirnd. Upp í óbyggðum höfðumst við við (skemmtilegt; við við), snæddum saman snjó og héldum hlýju hver á öðrum. Vottur af Brokeback-fjalla-fíling en engin ástarlot fylgdu þó að þessu sinni. Bara karlmannleg væntumþykja.
Eftirmáli; Engin rjúpa var skotin að þessu sinni. Aðalástaða þess var að ekki einn einasti fugl var sjáanlegur á svæðinu. Við reyndum að skjóta á rollur en þá kom einhver arfavitlaus bóndi og stoppaði það. Hann skutum við.
þar til næst, fokk off
siggilitligleðigjafi
9.11.2007 | 16:06
Ó, það böl að vera trúr
Djöfull getur það oft verið erfitt að vera trúr. Ég hef frá fimm ára aldri leikið með Val og þaðan koma flestir mínir bestu vina. Titlar og þeir oftast fleiri en tveir í hverjum flokki og sú ágætistilfinning að vera sigurvegari er meðal þess sem fylgt hefur árunum í Val. Já margt hef öðlast fyrir þau ár sem ég hef eytt að Hlíðarenda en fjöldi seðla eru þar ekki á meðal. ,,Betri er friður í hjarta en aur í hendi" er hugsun sem oft hefur hvarflað að manni í þessu samhengi og vil ég meina að mun fleiri í þessu þjóðfélagi mættu feta sama veg ég í þeim efnum. En, það er alltaf en! ,,Stundum langar manninn þessi lifandis ósköp" svo ég vitni í nýútkomna bók móður minnar ,,Aukaverkanir". Oft er það freistandi að selja sál sína fyrir aukin lífgæði, margur maðurinn hefur nú látið freistast í gegnum tíðina. En sá skuldum vafni framhaldsskólakennari sem ég er tók þann pólinn að fylgja hjartanu frekar en að stökkva á monníngana. Mun klárlega sjá eftir öllu saman þegar þeir koma og bera út húsgögnin mín vegna ógreiddra okurlána.
Og já, ég er því kominn aftur í Val. Vinirnir, Þjálfarinn, Umgjörðin, Titlarnir, Sagan, Hjartað. En sú ákvörðun hefur ekki vitund grynnkað á skuldum mínum. Helvítis loyalty alltaf hreint.
Sigurður Eggertson til Vals á nýjan leik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt 18.11.2007 kl. 18:46 | Slóð | Facebook
7.11.2007 | 18:09
Heim á ný, horfin ský, himinn sést, heima er best.
Nú ætla ég að taka mér smá tíma áður en ég fer á æfingar, jafna skrokkinn og tæma hugann. Að mörgu þarf að hyggja og vonast ég til að geta kúplað mig aðeins út úr þeim aðstæðum sem ég hef lifað við í 20 ár. Prófa hvernig það er að eiga kvöldin út af fyrir sig og geta gert eitthvað annað í lífinu en að spila bolta. En þrátt fyrir þetta tal nú er ég viss um að handboltinn mun sækja að mér fyr en mig grunar, þetta er nú það líf sem ég þekki.
Svo er bara að sjá hvort ég eigi erindi aftur í Val eða hvor eitthvað annað banki uppá.
þar til næst, fokk off
siggilitligleðigjafi
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 19:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.11.2007 | 16:19
Nakinn Negri
Svo var ég að uppfæra skoðanakönnun sem ég vil að allir taki þátt í. Velja bestu fyrirsögnina. Ég tek mér bara það bessaleyfi að velja mínar uppáhalds og þið veljið úr þeim.
þar til næst, fokk off
siggilitligleðigjafi
3.11.2007 | 16:39
Heim í hlýjuna
Fínt að vera laus úr þessu liði. Kom mér mikið á óvart hversu mikill amatörklúbbur þetta var þrátt fyrir að vera í dönsku úrvalsdeildinni. Standardinn var langt undir því sem maður á að venjast í Margmeistaraliði Vals. En maður er allavega búinn að prófa, smakka á mennskunni. Hver veit nema maður prófi þetta aftur. Kannski bara til að hafa ástæðu til að byrja að blogga aftur. Kem heim á þriðjudaginn og trúi ekki öðru en það verði mannmergð sem bíði eftir mér í flugstöðinni, tek jafnvel lagið ef nógu margir aðdáendur láta sjá sig.
þar til næst, fokk off
siggilitligleðigjafi
2.11.2007 | 14:09
Gamla landið gleður brátt
Jæja, heim á ný. Vonandi er þetta ekki bara einhver flótti hjá mér. Þó svo að það hafi verið vandlega falið hér í skrifum mínum hefur mér oft liðið betur en hér í Danmörku. Margt var á skjön við vonir og væntingar og þá sér í lagi ég. Ég sé þó ekki eftir þessari dvöl því ég veit að með tímanum á ég eftir að öðlast betri yfirsýn yfir þennan tíma hér og það mun þroska mig og bæta sem manneskju. Margt hef ég lært á þessum skamma tíma hér í Danmörku: Ég skil orðið dönsku og get yfirborðssnakkað, ég er farinn að geta stillt vel upp í leikkerfi og er orðinn mun betri leikstjónandi en ég var, ég veit það nú að það var mun fyndnara þegar gaurinn í auglýsingunni pissaði á ofninn í sánunni heldur en þegar þetta tekur sér stað í raunveruleikanum og síðast en ekki síst kom það í ljós að ég veit nú að ég veit ekkert hvað ég á að gera við mig í framtíðinni.
En allavega, töff að geta sagst hafa verið atvinnumaður í handbolta og það í svona sterkri deild. Nú hef ég nógan tíma á Gamla landinu til að hugsa minn gang. Vonandi dúkkar eitthvað upp en ef ekki þá þarf ég að hafa mig allan við að leita af því.
þar til næst, fokk off
siggilitligleðigjafi
30.10.2007 | 10:47
Enginn veit hvað átt hefur.
T.
Vakinn upp úr dimmum draumi
dreginn gegnum súrt og sætt
Tálsýn brast með táraflaumi
trúin á að geta bætt
Næ hvorki að tjá né túlka
tilfinningar mínar hér
Þó veit ég að þessi stúlka
þunga byrði með mér ber
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.10.2007 | 14:57
Fagmenn í fóðurleit; Kaffisetrið
Fagmenn í Fóðurleit
-Út að borða með Lionel-
Kaffisetrið
Borðað: Steiktar eggjanúðlur með kjúkling og steikt hrísgrjón í chilisósu með kjúkling.
Gæði fæðis: Gríðarleg gæði, mikið og gott bragð, enginn fituviðbjóður. Báðir réttirnir vel útilátnir og girnilegir. Það er deginum ljósara að í eldhúskróknum er að verki reynslumikið fólk sem hefur tileinkað sér mörg þúsund ára matarhefðir forfeðra sinna og náði svo sannarlega að fullnægja þörmum okkar.
Verð: 1000 karl á mann. Vel sloppið.
Stemning: Virkilega góð. Austurlandabúar og Íslendingar með gjaldþrotagreiðslu skapa framandi og afslappaða stemningu. Lágstemmd lýsingin inni á staðnum þvingar mann í rómantískt leiðsluástand sem getur fengið ófaglærða menn til að fella tár. Staðurinn leynir svo sannarlega á sér. Í gegnum tíðina hafa staðir í námunda við Hlemm haft það orð á sér að vera hálfgerð skítapleis en Kaffisetrið nær að rísa úr soranum sem fyrirrennarar þess og nágrannar sköpuðu. Við leggjum því til að nafninu verði breytt í Óðalssetrið.
Þjónusta: Elskuleg þjónusta en þó ekki um of. Okkur fannst við vera velkomnir.
Dollan: Gæði dollunnar voru ekki könnuð til hins ítrasta í þessari heimsókn en þó fá niðurgangslitaðir veggirnir mann vissulega til að hugsa sig um þrisvar áður en pantaður er karríréttur.
Kennaraeinkunn: 25 fiskar.
Fagmenn þakka fóðrið.Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 1310
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar